Ég elska þig svo heitt.. Að mig sundlar og verkjar...

Er það vittleysa í mér, kannski ekki svo góð mynd af kallinum.. En mér finnst hann vera farinn að láta á sjá. Vantar líka sólgleraugun, kannski er það bara það..

Mamma mín er  samt að verða 55 og hún lítur betur út .  

 

Er annars bara heima í dag með Aðalbjörgu, hún er búin að vera lasin um helgina. Og þar sem það er sundnámskeið hjá henni, þá ákvað ég að halda henni heima allavega í dag. Hún er hitalaus núna.

Sumarið byrjar bara vel hjá okkur mæðgum..   Amma Sigga hefur verið með annan fótinn hjá okkur, hún ætti nú bara að flytja til Húsavíkur til okkar.. :)

Bóbi er farinn á síldina, vika síðan.. Er samt á landleið núna með fullfermi, það fyrsta af mörgum vonandi.. 

Ætlum að fara í sumarbústað, í Grímsnesi (minnir mig), með Simma, Kiddý og Fannari Inga. Það verður stuð.

Birgitta kemur svo vonandi til okkar í heimsókn.. Aðalbjörg er allavega farin að plana dagskrá fyrir þær ;)

Jæja, datt í blogggírinn allt í einu, þetta var afraksturinn.

Bless í bili*


mbl.is Bubbi Morthens gekk í það heilaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband